Hringur Fiskimannsins - Gjafapakki

Hringur Fiskimannsins - Gjafapakki

6.900 kr
Skip to product information
Hringur Fiskimannsins - Gjafapakki

Hringur Fiskimannsins - Gjafapakki

6.900 kr

Aðeins fyrstu 250 kaupendur fá gjafapakkann með bókinni. Þetta eru forfeður þínir. Ástarsaga og valdabarátta. Í senn falleg og hrikaleg. Tryggðu þér eintak!

Hringur Fiskimannsins

Herra Eiríkur Sveinbjarnarson, riddari og hirðstjóri, stjórnaði Íslandi 1322-1340 ásamt Skálholts- og Hólabiskupum undir litlu eftirliti Noregskonungs. Eiríkur og Vilborg, eiginkona hans, eru talin ein frægustu hjón Íslands á fyrri hluta fjórtándu aldar. Þótt þau hafi erft tvö af stærstu kirkju- og höfuðbólum Íslands ólust þau upp í Noregi í skjóli Hákonar konungs háleggs. Í krafti gífurlegrar auðsöfnunar af sölu fisks frá Íslandi til Englands eignuðust þau fasteignir víða um Evrópu, auk lausafjár sem þau áttu í bönkum erlendis.

Þrátt fyrir ævintýralegt líferni, glímdu Eiríkur og Vilborg einnig við mótlæti, öfundsýki og hatur. Óblíð náttúra Íslands lék þau illa þegar jarðskjálfti skók Suðurland illyrmislega vorið 1340 og ári síðar gaus Hekla með hörmulegum afleiðingum. Hömlulaus metnaður Eiríks átti eftir að koma honum og fjölskyldu hans í koll, eins og þessi sögulega skáldsaga gerir góð skil.

You may also like